Hoppa yfir valmynd
6. janúar 2017 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Styrkir til félagasamtaka vegna verkefna á sviði heilbrigðismála lausir til umsóknar

Auglýsing frá velferðarráðuneyti

Styrkir til félagasamtaka vegna verkefna á sviði heilbrigðismála lausir til umsóknar.

Auglýst er eftir umsóknum um styrki frá íslenskum félagasamtökum vegna verkefna sem falla undir verkefnasvið ráðuneytisins á sviði heilbrigðismála. Ekki eru veittir styrkir til verkefna sem hljóta styrki á fjárlögum eða falla undir sjóði ráðuneytisins eða samninga sem gerðir hafa verið við ráðuneytið.

Umsóknarfrestur er til kl. 16:00  mánudaginn 30. janúar 2017.
Úthlutað verður eigi síðar en 28. febrúar 2017.

Úthlutun fer fram einu sinni á ári og eru veittir styrkir til verkefna sem miða að því að veita einstaklingum eða hópum stuðning, fræðslu og ráðgjöf. Styrkir eru ekki veittir til lengri tíma en eins árs í senn. Styrki má m.a. veita til verkefna sem felast í því að:

  1. Útbúa fræðsluefni og standa fyrir fræðslustarfsemi,
  2. vera málsvari og standa vörð um hagsmuni félagsmanna,
  3. bjóða félagsmönnum upp á stuðning og ráðgjöf.

Mat á umsóknum.

Starfshópur metur styrkhæfi umsókna og gildi þeirra fyrir verkefnasvið ráðuneytisins. Mat á umsóknum skal einkum byggjast á eftirtöldum sjónarmiðum eftir því sem við á, svo sem:

  1. Gildi og mikilvægi verkefnis fyrir viðkomandi málaflokk.
  2. Að umsækjanda muni takast að ná þeim markmiðum sem að er stefnt.
  3. Að verkefnið sé byggt á faglegum grunni.
  4. Að gerð sé grein fyrir því í umsókn hvernig staðið skuli að mati á árangri.
  5. Fjárhagsgrundvelli verkefnis og/eða hvort umsækjandi hafi hlotið aðra styrki til sama verkefnis.

Hafi umsækjandi áður fengið styrk til verkefnis þarf að liggja fyrir greinargerð um framkvæmd fyrra verkefnis og ráðstöfun styrkfjárins til að ný umsókn komi til greina.

Umsókn sem berst eftir að umsóknarfresti er lokið verður ekki tekin til umfjöllunar.

Sækja um á rafrænu formi á umsóknarvef Stjórnarráðsins (http://minarsidur.stjr.is)

Innskráning á mínar síður - þrjár leiðir:

  1. Auðkenning með rafrænum skilríkjum á vef Island.is
  2. Auðkenning með Íslykli á vef Island.is
  3. Notandi velur flipann Nýskráning og skráir sig á vefinn á kennitölu sinni, gefur upp fullt nafn, heimilisfang og netfang og ákveður síðan lykilorð.

Hafi notandi sótt um áður á Mínum síðum velur hann flipann Innskráning og skráir sig inn með einhverri ofangreindra aðferða.

Undir flipanum Eyðublöð eru eyðublöð flokkuð eftir ráðuneytum og stofnunum og þar undir velferðarráðuneyti – Styrkir er umsóknareyðublaðið Styrkur af safnliðum fjárlaga 2017 - heilbrigðismál.

Nánari upplýsingar og leiðbeiningar um gerð umsókna á rafrænum eyðublöðum er að finna á vef ráðuneytisins.

Vakin er athygli á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttum velferðarráðuneytisins og fá reglulega fréttir og tilkynningar þaðan. 

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum