Ráðuneyti Bjarna Benediktssonar tekur til við
Á fundi ríkisráðs á Bessastöðum í dag endurstaðfesti forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, tillögu forsætisráðherra, Sigurðar Inga Jóhannssonar, um að veita ráðuneyti hans lausn frá störfum.
Á öðrum fundi ríkisráðs sem haldinn var sama dag féllst forseti Íslands á tillögu Bjarna Benediktssonar alþingismanns um skipun fyrsta ráðuneytis hans og gaf út úrskurð um skiptingu starfa ráðherra.
Störfum er þannig skipt með ráðherrum:
- Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra.
- Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
- Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.
- Benedikt Jóhannesson, fjármála- og efnahagsráðherra.
- Sigríður Á. Andersen, dómsmálaráðherra.
- Jón Gunnarsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.
- Kristján Þór Júlíusson, mennta- og menningarmálaráðherra.
- Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra.
- Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra.
- Óttarr Proppé, heilbrigðisráðherra.
- Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráðherra.
Sjá nánar í forsetaúrskurði um skiptingu starfa ráðherra (á vef Stjórnartíðinda).
Einnig hafa verið gerðar breytingar á forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna á milli ráðuneyta.
Samkvæmt úrskurðinum munu málefni Seðlabanka Íslands færast til forsætisráðuneytisins frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu, en verkefni hagskýrslugerðar og upplýsinga um landshagi, þ.m.t. málefni Hagstofu Íslands, færast frá fyrrnefnda ráðuneytinu til þess síðarnefnda. Að auki flytjast málefni Vísinda- og tækniráðs og málefni þjóðmenningar frá forsætisráðuneytinu til mennta- og menningarmálaráðuneytis. Þá færast málefni Þingvallaþjóðgarðs, að undanskildum Þingvallabænum, frá forsætisráðuneytinu til umhverfis- og auðlindaráðuneytis og neytendamál færast til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis frá innanríkisráðuneytinu. Loks færast verkefni byggðamála til innanríkisráðuneytis en þau heyrðu áður undir atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.
Sjá nánar um skiptingu stjórnarmálefna á milli ráðuneyta í forsetaúrskurði (á vef Stjórnartíðinda).