Hoppa yfir valmynd
14. febrúar 2017 Matvælaráðuneytið

Heildarafli Íslands á loðnu aukinn í 196 þúsund tonn

Loðna
Loðna

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur á grundvelli tillagna Hafrannsóknarstofnunar ákveðið að auka heildarafla íslenskra skipa á loðnu í alls 196.075 tonn á þessari vertíð. Áætlað heildarverðmæti loðnuaflans er um 17 milljarðar króna.  

Fyrr í vetur hafði íslenskum skipum verið úthlutað rúmum 12 þúsund tonnum þannig að aukningin er rúmlega sextánföld.

Samkvæmt lögum 116/2006 um stjórn fiskveiða verður 5,3% aflans úthlutað á skiptimarkaði, alls 10.392 tonnum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum