Hoppa yfir valmynd
20. september 2017

Sjúkraliðar - Heilbrigðisstofnun Suðurnesja - Reykjanesbær - 201709/1502

 

Sjúkraliðar á Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja
 
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar eftir að ráða sjúkraliða til starfa á sjúkradeild. Um er að ræða framtíðarstörf og tímabundin störf, unnið er í vaktavinnu.

Leitað er eftir áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingum sem geta unnið sjálfstætt. Á stofnuninni er góð samvinna milli deilda, boðleiðir eru stuttar, hér ríkir góður starfsandi og fjölbreytileiki einkennir stofnunina.

Helstu verkefni og ábyrgð
Sjúkraliðar sinna ummönnun skjólstæðinga og öðrum störfum undir stjórn og í samvinnu við hjúkrunarfræðinga. Þeir starfa samkvæmt lögum og reglugerðum um heilbrigðisstarfsmenn. 

Hæfnikröfur
Íslenskt sjúkraliðaleyfi
Faglegur metnaður og vandvirkni
Jákvætt viðmót og sjálfstæð vinnubrögð 
Góð samskiptahæfni
Starfsreynsla er æskileg

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.
Sótt er um starfið rafrænt á www.hss.is undir laus störf. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og/eða viðtölum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSS við ráðningar á stofnunina. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir geta gilt í sex mánuði

Starfshlutfall er 20 - 80%
Umsóknarfrestur er til og með 09.10.2017

Nánari upplýsingar veitir
Bryndís Sævarsdóttir - [email protected] - 422-0500, 422-0643 

HSS Legudeildir sjúkraliðar
Skólavegur 6-8
230 Reykjanesbær


Smelltu hér til að sækja um starfið

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum