Hoppa yfir valmynd
10. nóvember 2017

Kerfisstjóri - Fjármálaeftirlitið - Reykjavík - 201711/1752

 

Kerfisstjóri

Leitum að öflugum starfsmanni í kerfisumsjón og þjónustu.
Upplýsingatæknisvið sér um rekstur og þróun tölvukerfa, ásamt því að þjónusta starfsfólk og eftirlitsskylda aðila við notkun kerfanna. Samstarf er við bæði innlendar og erlendar eftirlitsstofnanir um ýmis verkefni. Við leitum að tæknilega sinnuðum einstakling með góða þekkingu og reynslu af kerfisrekstri, ríka þjónustulund og góða öryggisvitund. Í boði er fjölbreytt og krefjandi starf í skemmtilegu umhverfi. 

Helstu verkefni og ábyrgð
- Uppfærsla og rekstur upplýsingatæknikerfa
- Uppsetning og viðhald tölvubúnaðar
- Umsjón með eldvegg, vefsíum og öðrum öryggisbúnaði
- Þjónusta við notendur tölvukerfa 
- Annað sem til getur fallið á upplýsingatæknisviði

Hæfnikröfur
- Viðeigandi menntun í kerfisrekstri eða tölvunarfræðum
- Reynsla af rekstri tölvukerfa 
- Þekking á umsýslu sýndarumhverfis (t.d. VMware)
- Þekking og reynsla á stjórnun eldveggja og öðrum vörnum netkerfa 
- Þekking og reynsla af Microsoft lausnum, s.s. Exchange, Skype og SCCM kostur
- Þekking á Veeam eða sambærilegum afritunarlausnum kostur
- Þekking á uppsetningu og stillingu gagnagrunna kostur
- Frumkvæði, þjónustulund og skipulögð vinnubrögð

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsjón með ráðningu hafa Bjarni Þór Gíslason upplýsingatæknistjóri ([email protected]) og Árni Ragnar Stefánsson mannauðsstjóri ([email protected]).

Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Fjármálaeftirlitsins, www.fme.is eða á www.starfatorg.is.

Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd. 

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 27.11.2017

Nánari upplýsingar veitir
Bjarni Þór Gíslason - [email protected] - 520-3700
Árni Ragnar Stefánsson - [email protected] - 520-3700

FME Upplýsingatæknisvið
Katrínartúni 2
105 Reykjavík


Smelltu hér til að sækja um starfið

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum