Hoppa yfir valmynd
18. nóvember 2017

Hjúkrunarfræðingur - Landspítali, Laugarásinn meðferðar- og endurhæfingadeild - Reykjavík - 201711/1772

 

Hjúkrunarfræðingur - Áhugavert og spennandi starf - umsóknarfrestur framlengdur til og með 2. janúar 2018.
 
Starf hjúkrunarfræðings á Laugarásnum meðferðar- og endurhæfingardeild er laust til umsóknar. Laugarásinn heyrir undir geðsvið og er fyrir ungt fólk með byrjandi geðrofssjúkdóm. 

Á deildinni eru 7 sólarhringspláss en að stærstum hluta er starfsemi deildarinnar dagdeild þar sem um 100 einstaklingar sækja þjónustu. Þar er unnið fjölbreytt og sérhæft starf í snemmíhlutun geðrofssjúkdóma fyrir einstaklinga á aldrinum 18-30 ára. Starfsemin er í stöðugri þróun og er áhersla lögð á einstaklingsmiðaða þjónustu og virkt samstarf við fjölskyldur og aðstandendur. 
Starfshlutfall er 100% og er eingöngu um dagvinnu að ræða, ásamt því að bakvaktir tilheyra starfinu. Staðan er laus frá 15. janúar 2018.

Helstu verkefni og ábyrgð
» Fjölbreytt meðferðarstarf sem tengist sérhæfingu deildarinnar
» Virk þátttaka í fjölfaglegu samstarfi og framþróun í starfi deildarinnar
» Málastjórn fyrir einstaklinga sem sækja þjónustu sem felur í sér almenna uppvinnslu, greiningu á einkennum, færni og getu sem og gerð meðferðaráætlana
» Virk þátttaka í fjölbreyttu fræðslustarfi
» Markvisst samstarf með fjölskyldum/aðstandendum
» Sérverkefni sem tengjast starfi deildarinnar

Hæfnikröfur
» Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi sem og einlægur áhugi á geðhjúkrun og öllu sem því starfi tengist, sér í lagi að starfa með ungu fólki
» Framúrskarandi samskiptahæfni er skilyrði sem og leiðtogahæfileikar
» Stundvísi og áreiðanleiki
» Færni til að hafa góða yfirsýn yfir fjölþætt starf deildarinnar
» Jákvæðni og sveigjanleiki gagnvart hinum ýmsu störfum sem til falla í starfsemi deildarinnar
» Góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði 
» Íslenskt hjúkrunarleyfi

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum. 

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt starfsleyfi. Boðað verður til viðtala við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim sem og innsendum gögnum. 

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 5000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 02.01.2017

Nánari upplýsingar veitir
Magnús Ólafsson - [email protected] - 824 5537

LSH Laugarásinn meðferðargeðdeild
Laugarásvegi 71
104 Reykjavík


Smelltu hér til að sækja um starfið

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum