Hoppa yfir valmynd
9. desember 2017

Sjúkraliði - Landspítali, bráðaöldrunarlækningadeild - Reykjavík - 201712/1877

 

Sjúkraliði óskast á bráðaöldrunarlækningadeild B4 Fossvogi
 
Við leitum eftir faglegum, jákvæðum og lífsglöðum sjúkraliða sem hefur áhuga á að hjúkra öldruðum. Á bráðaöldrunarlækningadeild fer fram greining og meðferð bráðra sjúkdóma hjá öldruðum. Deildin er bráðadeild með 22 rúm og þar starfa um 50 manns í þverfaglegu teymi. Lögð er áhersla á góð samskipti við sjúklinga, fjölskyldur þeirra og samstarfsfólk á deild.

Vinnutími og starfshlutfall er eftir samkomulagi. Við tökum vel á móti nýjum starfsmönnum og veitum góða aðlögun. Áhugasamir hafi samband við Ragnheiði Guðmundsdóttur, deildarstjóra. Það er velkomið að kíkja í heimsókn.

Helstu verkefni og ábyrgð
» Umönnun einstaklinga í samvinnu við aðra fagaðila
» Virk þátttaka í fjölskylduhjúkrun
» Þátttaka í teymisvinnu

Hæfnikröfur
» Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi
» Jákvætt viðmót og góð samskiptahæfni
» Íslenskukunnátta
» Áhugi á hjúkrun aldraðra
» Íslenskt sjúkraliðaleyfi

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.
Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum.

Um er að ræða 2 stöðugildi og eru störfin laus nú þegar eða eftir nánara samkomulagi. 
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 5000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.

Starfshlutfall er 50 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 28.12.2017

Nánari upplýsingar veitir
Ragnheiður Guðmundsdóttir - [email protected] - 543 9400
Bára Benediktsdóttir - [email protected] - 824 5909

LSH Bráðaöldrunarlækningadeild
Fossvogi
108 Reykjavík


Smelltu hér til að sækja um starfið

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum