Umsagnarfrestur framlengdur um drög að frumvarpi til laga um lögheimili
Umsagnarfestur um drög að frumvarpi til laga um lögheimili hefur verið framlengdur til mánudagsins 22. janúar næstkomandi. Senda skal umsagnir á netfangið [email protected] fyrir þann tíma.
Markmið lagasetningarinnar eru m.a. að tryggja að löggjöf um lögheimili og skráningar aðseturs samræmist þörfum og samfélagsháttum nútímans, hún sé skýr og auðskiljanleg. Nauðsynlegt er talið að samræma skráningu landsmanna, gera hana miðlæga og stuðla að því að hún verði ávallt sem réttust og fari að mestu leyti fram með rafrænni skráningu.