Hoppa yfir valmynd
17. janúar 2018

Lífeindafræðingur - Heilbrigðisstofnun Norðurlands - Húsavík - 201801/138

 

Heilbrigðisstofnun Norðurlands auglýsir stöðu lífeindafræðings á Húsavík

HSN Húsavík óskar eftir lífeindarfræðing á rannsóknarstofu.

Um er að ræða 70% til 100% starf auk bakvakta.
Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Á rannsóknarstofunni eru gerðar allar helstu rannsóknir í blóðmeinafræði, klínískri lífefnafræði og sýklafræði. Deildin þjónustar aðrar starfseiningar HSN frá Blönduós í vestri til Þórshafnar í austri. Í dag eru starfsmenn rannsóknarstofunnar fjórir og þar af tveir lífeindafræðingar.

Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinna við þjónusturannsóknir á sjúklingasýnum
- Blóðsýnatökur
- Skráning í upplýsingakerfi HSN
- Virk þátttaka í gæðastarfi og kennslu
- Stuðla að góðri þjónustu 

Hæfnikröfur
- Íslenskt starfsleyfi lífeindafræðings
- Viðbótarmenntun sem nýtist í starfi æskileg
- Starfsreynsla lífeindafræðings æskileg
- Faglegur metnaður
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
- Frumkvæði, yfirsýn og skipulagsfærni
- Jákvæðni og samskiptahæfni 

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag lífeindafræðinga hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilsskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi.

Öllum umsóknum verður svarað.

Starfshlutfall er 70 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 05.02.2018

Nánari upplýsingar veitir
Snædís Birna Björnsdóttir - [email protected] - 464 0546/840 0714

HSN Húsavík Rannsóknardeild
Auðbrekka 4
640 Húsavík


Smelltu hér til að sækja um starfið

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum