Gróðurvistfræðingur - Náttúrufræðistofnun Íslands - Garðabær - 201802/414
Gróðurvistfræðingur
Náttúrufræðistofnun Íslands óskar eftir að ráða sérfræðing í gróðurvistfræði
Starfið felur í sér:
• Verkefni og rannsóknir á sviði gróðurvistfræði, greiningum á gróðri og vistgerðum og vistkerfum
• Kortlagning, greining, flokkun og skráning á vistgerðum landsins
• Mat á verndargildi gróðurs og vistgerða
• Ráðgjöf og fræðsla til sérfræðinga og almennings
• Vinna við ráðgjafaverkefni og önnur tilfallandi verkefni
Menntun og hæfniskröfur:
• Háskólapróf, meistaragráða í gróðurvistfræði eða sambærilegum greinum
• Reynsla af rannsóknum í gróðurvistfræði
• Reynsla af vettvangsvinnu
• Lipurð í mannlegum samskiptum og ritfærni á íslensku og ensku
Nánari upplýsingar um starfið veitir Trausti Baldursson, forstöðumaður Vistfræði- og ráðgjafadeildar ([email protected]), sími 5900500.
Umsókn, ásamt ítarlegri starfsferilsskrá og kynningarbréfi, skal senda á netfangið [email protected] eða á heimilisfang Náttúrufræðistofnunar Íslands, Urriðaholtsstræti 6-8, 212 Garðabæ.
Umsóknarfrestur er til 15. mars 2018.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum stéttarfélaga opinberra starfsmanna við fjármálaráðuneytið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Við ráðningar í störf hjá Náttúrufræðistofnun Íslands er tekið mið af jafnréttisstefnu stofnunarinnar.