Sjávarlíffræðingur - Náttúrufræðistofnun Íslands - Garðabær - 201802/416
Sjávarlíffræðingur
Náttúrufræðistofnun Íslands auglýsir eftir sjávarlíffræðingi með áherslu á lífríki í fjörum.
Starfið felur í sér:
• Rannsóknir á vistgerðum og lífríki í fjöru
• Umsjón með vöktun á vistgerðum í fjöru
• Greining sjávarlífvera, skráning, frágangur eintaka í vísindasafn
• Samantekt á efni fyrir vef stofnunarinnar
• Úrvinnslu, vistun gagna, kortlagningu og skýrslugerð auk annarra tilfallandi starfa
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólapróf í sjávarlíffræði, fjöruvistfræði, eða sambærileg menntun
• Þekking á lífríki sjávar og vistfræði fjöru er nauðsynleg
• Þekking á kortlagningu og vistgerðaflokkun er æskileg
• Reynsla af tölfræðiúrvinnslu og landupplýsingakerfum er æskileg
• Kunnátta í framsetningu landupplýsinga er æskileg
• Lipurð í mannlegum samskiptum og ritfærni á íslensku og ensku
Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðmundur Guðmundsson ([email protected]), sími 5900500. Umsókn ásamt ítarlegri starfsferilsskrá, sendist á netfangið [email protected] eða með bréfpósti til Náttúrufræðistofnunar Íslands, Urriðaholtsstræti 6-8, 210 Garðabæ.
Umsóknarfrestur er til 15. mars 2018.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum stéttarfélaga opinberra starfsmanna við fjármálaráðuneytið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Við ráðningar í störf hjá Náttúrufræðistofnun Íslands er tekið mið af jafnréttisstefnu stofnunarinnar.