Hoppa yfir valmynd
24. febrúar 2018

Aðstoðarmaður - Landspítali, bráða- og göngudeild - Reykjavík - 201802/422

 

Aðstoðarmaður óskast á bráða- og göngudeild í Fossvogi
 
Ertu jákvæður og með ríka þjónustulund?
Við óskum eftir aðstoðarmanni til starfa á bráða- og göngudeild G3 Fossvogi. Þar fer fram móttaka og hjúkrun sjúklinga vegna slysa og sjúkdóma. Starfshlutfall er 80-100% og er starfið laust sem fyrst eða eftir samkomulagi.
Deildin er opin alla daga ársins frá kl. 8:00-23:30. Unnið er á tvískiptum vöktum og aðra hverja helgi. 

Á deildinni starfa um 45 manns í þverfaglegu teymi. Góður starfsandi er ríkjandi. Við tökum vel á móti nýjum starfsmönnum og veitum góða aðlögun. Velkomið að kíkja í heimsókn, áhugasamir hafið samband við Báru Benediktsdóttur, mannauðsráðgjafa.

Helstu verkefni og ábyrgð
» Flutningur sjúklinga innan deildar og milli deilda
» Halda deildinni snyrtilegri og hreinni
» Aðstoð við móttöku sjúklinga
» Önnur tilfallandi verkefni

Hæfnikröfur
» Góð íslenslukunnátta
» Jákvæðni og lipurð í samskiptum
» Rík þjónustulund
» Lágmarksaldur umsækjanda er 20 ár

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Efling stéttarfélag hafa gert.
Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum. 

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 5000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.

Starfshlutfall er 80 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 12.03.2018

Nánari upplýsingar veitir
Sólveig Wium - [email protected] - 825 3786
Bára Benediktsdóttir - [email protected] - 824 5909

LSH Bráða- og göngudeild
Fossvogi
108 Reykjavík


Smelltu hér til að sækja um starfið


 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum