Hoppa yfir valmynd
22. mars 2018

Vélamaður - Vegagerðin - Höfn í Hornafirði - 201803/644

Vélamaður Höfn í Hornafirði og Reyðarfirði

Starf vélamanns hjá þjónustustöðinni Höfn í Hornafirði eru laus til umsóknar. Um er að ræða 100% starf.

Starfssvið

  • Almenn dagleg þjónusta á vegakerfinu á starfssvæðumi Vegagerðarinnar á Höfn í Hornafirði.
  • Viðhald á t.d. vegstikum, umferðamerkjum og öðrum  vegbúnaði.
  • Ýmis vinna í starfsstöð

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Almenn menntun
  • Almenn ökuréttindi og meirapróf
  • Vinnuvélaréttindi
  • Reynsla af ámóta störfum æskileg
  • Reynsla af vegheflun er æskileg
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í hóp
  • Góð kunnátta í íslensku

Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður sem hentar jafnt báðum kynjum.

Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi ríkisins og Starfsgreinasambands Íslands.

Umsóknarfrestur er til og með 9. apríl 2018. Umsóknir berist Vegagerðinni á netfangið [email protected]  Í umsókninni komi fram persónulegar upplýsingar ásamt upplýsingum um þá menntun og hæfni sem óskað er eftir.

Æskilegt er að starfsmaður geti hafið störf sem fyrst.

Nánari upplýsingar  um starfið veitir Reynir Gunnarsson rekstrarstjóri á þjónustustöðinni á Höfn í síma 522 1991 og í gegnum netfangið [email protected] og Davíð Þór Sigfússon byggingafræðingur í síma 522 1945 og í gegnum netfangið [email protected]

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum