Hoppa yfir valmynd
23. apríl 2018

Kennarar - Fjölbrautaskóli Snæfellinga - Grundarfjörður - 201804/844


 
Framhaldskólakennarar– Fjölbrautaskóli Snæfellinga

Fjölbrautaskóla Snæfellinga Grundarfirði óskar eftir að ráða framhaldskólakennara næstkomandi skólaár 2018-2019. Meðal kennslugreina eru efnafræði, eðlisfræði, jarðfræði, líffræði, lífsleikni, sálfræði, danska og enska.

Helstu áherslupunktar í kennsluháttum skólans eru  nýting upplýsingatækni í skólastarfi, fjölbreyttar verkefnamiðaðar kennsluaðferðir og námsmat með sérstakri áherslu á leiðsagnarmat. 
Umsækjendur þurfa að hafa háskólamenntun í fagi og kennsluréttindi á framhaldsskólastigi. Leitað er að kennurum sem hafa frumkvæði, eru sjálfstæðir í vinnubrögðum og hafa áhuga á að taka þátt í þróunarstarfi og uppbyggingu náms í samræmi við ný lög um framhaldsskóla (nr. 92/2008). Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra við KÍ og stofnanasamningi skólans.

Ráðið verður í stöðurnar frá 1. ágúst 2018.

Ekki þarf að sækja um á sérstökum eyðublöðum. Umsókn með ferilskrá, prófskírteinum, sakavottorði og með upplýsingum um umsagnaraðila skal senda rafrænt til skólameistara Fjölbrautaskóla Snæfellinga á netfangið [email protected]. Einnig er hægt að senda umsóknir í pósti: Fjölbrautaskóli Snæfellinga, Grundargötu 44, 350 Grundarfirði.

Umsóknarfrestur er til og með 14. maí 2018.

Öllum umsækjendum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Sakavottorð þarf að liggja fyrir við ráðningu. Nánari upplýsingar veitir Hrafnhildur Hallvarðsdóttir skólameistari [email protected] 

Einnig er hægt að hafa samband í síma 4308400. Á vef skólans www.fsn.is má auk þess finna ýmsar upplýsingar um skólann.

Skólameistari

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum