Námsráðgjafi - Fjölbrautaskóli Snæfellinga - Grundarfjörður - 201804/846
Námsráðgjafi
Við Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði er laus til umsóknar 50 % staða námsráðgjafa. Umsækjendur þurfa að hafa háskólamenntun í námsráðgjöf.
Ráðið verður í stöðuna frá 1. ágúst 2018.
Ekki þarf að sækja um á sérstökum eyðublöðum. Umsókn með ferilskrá, prófskírteinum, sakavottorði og með upplýsingum um umsagnaraðila skal senda rafrænt til skólameistara Fjölbrautaskóla Snæfellinga á netfangið [email protected]. Einnig er hægt að senda umsóknir í pósti: Fjölbrautaskóli Snæfellinga, Grundargötu 44, 350 Grundarfirði.
Umsóknarfrestur er til og með 14. maí 2018.
Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra við viðkomandi stéttarfélag og stofnanasamningi skólans.
Öllum umsækjendum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Sakavottorð þarf að liggja fyrir við ráðningu. Nánari upplýsingar veitir skólameistari á netfanginu [email protected].
Einnig er hægt að hafa samband í síma 4308400. Á vef skólans www.fsn.is má auk þess finna ýmsar upplýsingar um skólann.
Skólameistari