Hoppa yfir valmynd
20. júní 2018 Innviðaráðuneytið

Ungt fólk, ferðaþjónusta og hafið til umræðu á fundi samstarfsráðherra Norðurlandanna

Svipmynd frá fundi samstarfsráðherra Norðurlandanna í Lundi í Svíþjóð. - mynd

Formennska Íslands í Norrænu ráðherranefndinni, sem hefst um næstu áramót, var til umræðu á fundi samstarfsráðherra Norðurlandanna sem fram fór í Lundi í Svíþjóð í dag. 

Sigurður Ingi Jóhannsson, samstarfsráðherra Norðurlandanna, gerði grein fyrir fyrirhuguðum áherslum Íslands á formennskuárinu 2019 en þá mun Ísland meðal annars leggja áherslu á málefni ungs fólks, sjálfbæra ferðaþjónustu í norðri og málefni hafsins. Ísland mun frá og með næstu áramótum stýra samnorrænum verkefnum á þessum sviðum sem fjármögnuð verða af Norrænu ráðherranefndinni.

Norðurlöndin skiptast á að stýra Norrænu ráðherranefndinni og á næsta ári er komið að Íslandi. Margot Wallström, utanríkisráðherra Svíþjóðar sem jafnframt er samstarfsráðherra Norðurlandanna, stýrði fundi en á honum var einnig rætt um sameiginlegt kynningarstarf og annað alþjóðlegt samstarf Norðurlandanna á alþjóðavettvangi. Þá komu málefni Norður-Atlantshafssvæðisins til umræðu og nauðsyn þess að Norðurlöndin fylgdu sameiginlegri stefnu á þessu risastóra og mikilvæga svæði, með tilliti til efnahagslegrar uppbyggingar, umhverfismála, samgangna og byggðamála. Loks var rætt um mikilvægi áframhaldandi samvinnu Norðurlandanna sín á milli til dæmis með því að styrkja stúdentaskipti (Nordplus) og taka upp sameiginleg rafræn skilríki á Norðurlöndunum (e-ID).

  •   - mynd

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum