Hoppa yfir valmynd
23. júní 2018

Hjúkrunarfræðingur í öldrunarteymi

Hjúkrunarfræðingur í öldrunarteymi Landspítala

Hefurðu brennandi áhuga á samskiptum og hjúkrun aldraðra? 
Laust er til umsóknar starf hjúkrunarfræðings í öldrunarteymi Landspítala. Um er að ræða dagvinnu og er starfshlutfall 80-100%. Starfið veitist frá 1. ágúst 2018 eða samkvæmt nánara samkomulagi. 

Öldrunarteymið er teymi öldrunarlæknis og hjúkrunarfræðinga sem tilheyrir flæðideild og hefur aðsetur í Fossvogi. Hlutverk teymisins er að vera ráðgefandi aðili við deildir spítalans um greiningu og meðferð aldraðra með heildrænu öldrunarmati. Starfið er fjölbreytt og felur í sér samskipti við ólíkar starfsstéttir innan spítalans. 

Helstu verkefni og ábyrgð
» Verkefni tengd því hvernig viðhalda má færni, sjálfstæði og vellíðan fjölveikra aldraðra einstaklinga
» Stuðst er við staðlað öldrunarmat
» Ráðgjöf um hjúkrun aldraðra við legudeildir LSH 
» Náin samvinna við útskriftarteymi LSH

Hæfnikröfur
» A.m.k. 5 ára starfsreynsla í hjúkrun og viðamikil reynsla í öldrunarhjúkrun 
» Góð þekking á heilbrigðiskerfinu sérstaklega öldrunarþjónustu
» Faglegur metnaður í starfi
» Samskiptahæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
» Góð íslenskukunnátta 
» Íslenskt hjúkrunarleyfi

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum. 
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996. 

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Ráðning byggir m.a. á innsendum gögnum og viðtölum.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 5.500 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.

Starfshlutfall er 80 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 10.07.2018

Nánari upplýsingar veitir
Herdís Herbertsdóttir - [email protected] - 824 5956
Bára Benediktsdóttir - [email protected] - 824 5909

LSH Flæðisdeild
Fossvogi
108 Reykjavík


Smelltu hér til að sækja um starfið

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum