Hoppa yfir valmynd
23. júní 2018

Sérfræðingur í hjúkrun aldraðra

Sérfræðingur í hjúkrun aldraðra í öldrunarteymi Landspítala 

Laus er til umsóknar staða sérfræðings í hjúkrun aldraðra á flæðisviði Landspítala. Starfshlutfall er 80 -100%. Starfið er laust frá 1. ágúst 2018 eða eftir samkomulagi. 

Sérfræðingur í hjúkrun starfar samkvæmt starfslýsingu en meginhlutverk auk klínískra starfa er stuðningur og ráðgjöf til sjúklinga og aðstandenda, ráðgjöf og kennsla til starfsfólks og nemenda auk rannsókna- og þróunarvinnu. Enn fremur felur starfið í sér uppbyggingu, samræmingu og skipulagningu öldrunarþjónustu í samvinnu við aðrar heilbrigðisstéttir.

Öldrunarteymið er teymi öldrunarlæknis, sérfræðings í hjúkrun og hjúkrunarfræðings. Teymið tilheyrir flæðideild og hefur aðsetur í Fossvogi. Hlutverk teymisins er að vera ráðgefandi aðili við deildir spítalans um greiningu og meðferð aldraðra með heildrænu öldrunarmati. Starfið er fjölbreytt og felur í sér samskipti við ólíkar starfsstéttir innan spítalans.

Helstu verkefni og ábyrgð
» Starfar í öldrunarteymi Landspítala
» Klínísk störf og ráðgjöf
» Þróun hjúkrunar innan sérgreinar
» Kennsla og rannsóknir
» Innleiðing nýrra verkferla og nýjunga í meðferð
» Þróun þjónustu við sjúklinga

Hæfnikröfur
» Meistara- eða doktorspróf í hjúkrunarfræði 
» Sérfræðileyfi í hjúkrun aldraðra, í samræmi við reglugerð nr. 124/2003 um sérfræðileyfi í hjúkrun 
» 5 ára starfsreynsla 
» Leiðtoga- og samstarfshæfni

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum. 

Umsókn skulu fylgja vottfestar upplýsingar um nám, fyrri störf, reynslu af kennslu, vísindavinnu.
Umsóknargögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast til Guðlaugar Rakelar Guðjónsdóttur, framkvæmdastjóra flæðisviðs, C-13 Landspítala Fossvogi fyrir 16. júlí 2018.

Allar umsóknir verða sendar til stöðunefndar hjúkrunarráðs Landspítala. Ákvörðun um ráðningu byggir á viðtölum við umsækjendur, innsendum gögnum og umsögn stöðunefndar hjúkrunarráðs.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 5.500 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.

Starfshlutfall er 80 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 16.07.2018

Nánari upplýsingar veitir
Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir - [email protected] - 543 2270

LSH Skrifstofa flæðisviðs
Fossvogi
108 Reykjavík


Smelltu hér til að sækja um starfið

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum