Hoppa yfir valmynd
18. ágúst 2018

Hjúkrunarfræðingur - öldrunarlækningadeild

Hjúkrunarfræðingur - hlutastarf á öldrunarlækningadeild L3 Landakoti

Öldrunarlækningadeild L3 Landakoti auglýsir eftir hjúkrunarfræðingi í hlutastarf. Starfshlutfall er 60% og veitist starfið frá 1. október 2018 eða eftir nánara samkomulagi. 
Deildin er fimm daga endurhæfingardeild fyrir aldraða. Deildin er lokuð um helgar og helgidaga.

Helstu verkefni og ábyrgð
» Ákveður, skipuleggur og veitir hjúkrunarmeðferð í samráði við skjólstæðing og ber ábyrgð á meðferð
» Skipuleggur og veitir fræðslu til sjúklinga og aðstandenda
» Þátttaka í teymisvinnu

Hæfnikröfur
» Íslenskt hjúkrunarleyfi
» Góð samskiptahæfni
» Faglegur metnaður

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum. 
Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum og eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteini og starfsleyfi.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 5.500 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.

Starfshlutfall er 60%
Umsóknarfrestur er til og með 03.09.2018

Nánari upplýsingar veitir
Maríanna Hansen - [email protected] - 543 9878
Bára Benediktsdóttir - [email protected] - 543 1787

LSH Öldrunarlækningadeild F
v/Túngötu
101 Reykjavík


Smelltu hér til að sækja um starfið

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum