Hoppa yfir valmynd
18. ágúst 2018

Sjúkraliði - Smitsjúkdómadeild

Sjúkraliði - Smitsjúkdómadeild

Viltu öðlast fjölþætta reynslu? Við óskum eftir sjúkraliða til starfa á smitsjúkdómadeild A7 á lyflækningasviði. Starfshlutfall er samkomulagsatriði, unnið er í vaktavinnu sem hefur marga kosti umfram dagvinnu.

Deildin er 20 rúma sólarhringsdeild, ætluð sjúklingum með bráð lyflæknisvandamál. Deildin sérhæfir sig í smitsjúkdómum en sjúklingahópurinn er fjölbreyttur og gefast því góð tækifæri til starfsþróunar og að öðlast fjölþætta reynslu. 

Á deildinni starfa um 70 manns í nánu samstarfi við fagfólk í öðrum sérgreinum. Góður starfsandi er ríkjandi og unnið er markvisst að faglegri þróun og fögnum við nýjum hugmyndum. 
Við tökum vel á móti nýju fólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun. Það er velkomið að heimsækja okkur á deildina. Áhugasamir hafið samband við Stefaníu, deildarstjóra.

Helstu verkefni og ábyrgð
» Hjúkrun einstaklinga í samvinnu við aðra fagaðila
» Virk þátttaka í fjölskylduhjúkrun

Hæfnikröfur
» Jákvætt viðhorf, frumkvæði og samskiptahæfileikar
» Sjálfstæði í vinnubrögðum
» Íslenskt sjúkraliðaleyfi

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum. 
Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum og eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað. Um er að ræða 4 stöðugildi.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 5.500 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.

Starfshlutfall er 50 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 03.09.2018

Nánari upplýsingar veitir
Stefanía Arnardóttir - [email protected] - 825 3688
Þórdís Ágústa Ingólfsdóttir - [email protected] - 824 5480

LSH Smitsjúkdómadeild
Fossvogi
108 Reykjavík


Smelltu hér til að sækja um starfið

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum