Hoppa yfir valmynd
16. október 2018

Teymisstjóri tölvurekstrar

Teymisstjóri tölvurekstrar

Við leitum að einstaklingi til að stýra teymi tölvurekstrar á Þjónustusviði Þjóðskrár Íslands. Ef þú ert rétti einstaklingurinn sem er tilbúinn að leiða okkur inn í framtíðina, hefur brennandi áhuga á tækni, metnað fyrir nýjungum og hæfileika til að miðla þekkingu þá viljum við fá þig í hópinn. 

Helstu verkefni:
Ábyrgð á daglegum rekstri tölvukerfa
Ábyrgð á daglegum rekstri tölvurekstrarþjónustu
Ábyrgð á að tölvurekstur sé í samræmi við ISO27001
Stefnumótun og framþróun tölvuumhverfis ÞÍ
Samskipti við birgja og innkaup 

Hæfniskröfur:
Tæknilegar vottanir eða önnur menntun sem nýtist í starfi er skilyrði
Haldgóð reynsla í rekstri tölvukerfa er skilyrði 
Góð þekking á Microsoft, Linux og tölvunetum er mikill kostur
Reynsla af stjórnun og leiðtogahæfni er kostur
Þekking á ISO27001 er kostur
Góðir skipulagshæfileikar og samskiptafærni
Sjálfstæði, frumkvæði og framúrskarandi þjónustulipurð

Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um starfið. Í teyminu starfa fimm kerfisstjórar sem þjónusta Þjóðskrá Íslands ásamt nokkrum opinberum stofnunum.

Við kunnum vel að meta frumkvæði, nákvæmni, sköpunargleði og hraða í vinnubrögðum. Við nýtum aðferðir straumlínustjórnunar til að verða betri í dag en í gær. 

Um er að ræða fullt starf og laun samkvæmt gildandi kjarasamningi. Umsóknarfrestur er til og með 5. nóvember 2018.   

Umsóknum skulu fylgja starfsferilskrár og kynningarbréf. Umsóknir óskast sendar á netfangið [email protected]. Athygli er vakin á því, að umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Nánari upplýsingar veitir Dagbjört M. Pálsdóttir, deildarstjóri, netfang [email protected]

Hlutverk Þjóðskrár Íslands er að greiða götu fólks og fyrirtækja í samfélaginu og gæta upplýsinga um réttindi þeirra og eignir. Við sinnum því með því að safna, varðveita og miðla upplýsingum um fólk, mannvirki og landeignir. Innan starfsviðs Þjóðskrár Íslands er rekstur fasteignaskrár og þjóðskrár, útgefið fasteignamat og brunabótamat, rekstur island.is og umsjón með útgáfu vegabréfa.

Við leggjum ríka áherslu á jákvæð samskipti og góða samvinnu sem er undirstaða góðrar þjónustu. Við teljum eftirsóknarvert að fá til liðs við okkur þá sem vilja starfa í anda gilda okkar um virðingu, sköpunargleði og áreiðanleika. Þjóðskrá Íslands er bæði staðsett í Reykjavík og á Akureyri. 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum