Hoppa yfir valmynd
20. október 2018

Hjúkrunarfræðingur - Endurhæfingardeild á Grensási

Hjúkrunarfræðingur - Endurhæfingardeild á Grensási

Áttu auðvelt með að vinna í teymi?
Laust er til umsóknar starf hjúkrunarfræðings á endurhæfingardeild Grensási. Starfshlutfall er samkomulagsatriði, æskilegt að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
Á deildinni eru að jafnaði um 24 einstaklingar sem eiga það sameiginlegt að hafa tapað færni, tímabundið eða varanlega vegna slysa eða veikinda. Markmið endurhæfingar er að gera einstaklinga eins sjálfbjarga líkamlega, andlega og félagslega og geta leyfir.

Á deildinni starfa um 50 manns í þverfaglegu teymi. Starfið býður upp á tækifæri til að þróa með sér mikla faglega þekkingu og hæfni í sjálfstæðum vinnubrögðum. Góð aðlögun í boði.

Helstu verkefni og ábyrgð

» Ákveða, skipuleggja og veita hjúkrunarmeðferð
» Þátttaka í þvegfaglegri teymisvinnu
» Fræðsla til sjúklinga og aðstandenda
» Þátttaka í þverfaglegum faghópum

Hæfnikröfur

» Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi
» Hæfni og áhugi á teymis- og verkefnavinnu
» Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun
» Jákvætt viðhorf og samskiptahæfileikar
» Íslenskt hjúkrunarleyfi

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 5.500 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.

Starfshlutfall er 50 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 05.11.2018

Nánari upplýsingar veitir

Sigríður Guðmundsdóttir - [email protected] - 824 5291
Bára Benediktsdóttir - [email protected] - 824 5909

LSH Endurhæfingardeild
Grensási
108 Reykjavík

Sækja um starf


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum