Hoppa yfir valmynd
20. október 2018

Sjúkraliði - Endurhæfingardeild Grensási

Sjúkraliði - Endurhæfingardeild Grensási

Laust er til umsóknar starf sjúkraliða á endurhæfingardeild Grensási. Starfshlutfall er samkomulagsatriði. Deildin þjónar einstaklingum sem þurfa á endurhæfingu að halda eftir alvarleg slys eða veikindi. Unnið er eftir hugmyndafræði endurhæfingarhjúkrunar þar sem lögð er áhersla á að veita heildræna þverfaglega þjónustu sem tekur mið af þörfum einstaklingsins og fjölskyldu hans. Endurhæfing felur m.a. í sér aðlögun að breyttum aðstæðum og er sameiginlegt verkefni milli einstaklings sem í hlut á, þeirra sem standa honum næst og þverfaglegs teymis.

Á deildinni starfa um 50 manns í þverfaglegu teymi. Starfið býður upp á tækifæri til að þróa með sér mikla faglega þekkingu og hæfni í sjálfstæðum vinnubrögðum. Góð aðlögun í boði.

Helstu verkefni og ábyrgð

» Hjúkrun einstaklinga í endurhæfingu í samvinnu við aðra fagaðila
» Virkur þátttakandi í teymisvinnu
» Þátttaka í verkefnavinnu tengdri hjúkrun ákveðinna sjúklingahópa

Hæfnikröfur

» Íslenskt sjúkraliðaleyfi
» Jákvætt viðhorf, frumkvæði og samskiptahæfileikar
» Sjálfstæði í vinnubrögðum

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.
Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum.

Starfið er laust nú þegar eða eftir nánara samkomulagi. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 5.500 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.

Starfshlutfall er 50 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 05.11.2018

Nánari upplýsingar veitir

Sigríður Guðmundsdóttir - [email protected] - 824 5291
Bára Benediktsdóttir - [email protected] - 824 5909

LSH Endurhæfingardeild
Grensási
108 Reykjavík

Sækja um starf

Starfssvið: Tæknar- og sérmenntað starfsfólk

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum