Hoppa yfir valmynd
6. desember 2018

Hjúkrunarfræðingar - Sauðárkrókur

Heilbrigðisstofnun Norðurlands Sauðárkróki, hjúkrunarfræðingar 
 
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) á Sauðárkróki óskar eftir hjúkrunarfræðingum á hjúkrunar- og sjúkrasvið.
Ráðningartími er frá 01.02.2019 eða samkvæmt samkomulagi.
Starfshlutfall er 50-100% eða samkvæmt samkomulagi.

Á hjúkrunarsviði eru þrjár samreknar deildar með 30 hjúkrunarrýmum og 10 dvalarrýmum.
Á sjúkrasviði er 7 rúma sjúkradeild og 14 rúma hjúkrunardeild. Þar eru að auki 1-2 hvíldarrými. Deildirnar eru samreknar.

Helstu verkefni og ábyrgð
Í starfinu felst ábyrgð á öllum almennum verkefnum hjúkrunarfræðinga samkvæmt lögum og reglugerðum. Einnig að unnið sé samkvæmt markmiðum hjúkrunar, deildarinnar og stofnunarinnar.

Hæfnikröfur
- Fullgilt hjúkrunarpróf og íslenkst starfsleyfi
- Starfsreynsla í hjúkrun æskileg
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Jákvæðni og sveigjanleiki
- Hæfni til að vinna í teymi

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Öllum umsóknum verður svarað. Áskilinn er réttur til að hafna umsóknum ef einstaklingar uppfylla ekki framangreind skilyrði. 
Öllum umsóknum skal fylgja afrit af prófskírteini, íslenskt hjúkrunarleyfi og náms- og starfsferilskrá.

Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.

Gildi HSN eru - fagmennska, samvinna, virðing. 

Starfshlutfall er 50 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 28.12.2018

Nánari upplýsingar veitir
Herdís Klausen - [email protected] - 455 4011

HSN Sauðárkrókur Sjúkrasvið
Sauðárhæðir
550 Sauðárkrókur


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum