Hoppa yfir valmynd
6. desember 2018

Starfsmaður í lyfjadeild

Starfsmaður í lyfjadeild
 
Sjúkratryggingar Íslands óska eftir að ráða starfsmann í fullt starf í lyfjadeild stofnunarinnar.

Helstu verkefni og ábyrgð
- Afgreiða umsóknir um lyfjaskírteini
- Svara fyrirspurnum og miðla upplýsingum til viðskiptamanna SÍ 
- Fagleg aðkoma og vinna við ýmis mál er tengjast starfsemi deildarinnar
- Önnur tilfallandi verkefni

Hæfnikröfur
- Reynsla úr apóteki (afgreiðsla lyfja) eða sambærileg reynsla 
- Starfsleyfi sem lyfjatæknir er kostur
- Góð almenn tölvukunnátta
- Gott vald á íslensku 
- Jákvætt viðhorf og samskiptafærni
- Vandvirkni og sjálfstæð vinnubrögð

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og SFR - stéttarfélag í almannaþjónustu hafa gert.
Æskilegt er að starfsmaður geti hafið störf sem fyrst. 

Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Sjúkratrygginga Íslands, www.sjukra.is/starf. Umsóknum þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi. Öllum umsóknum verður svarað þegar niðurstaða um ráðningu liggur fyrir. Ráðning tekur mið af jafnréttisáætlun stofnunarinnar. Umsókn gildir í 6 mánuði frá lokum umsóknarfrests.

Upplýsingar um stofnunina má finna á heimasíðu hennar: www.sjukra.is 

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 03.01.2019

Nánari upplýsingar veitir
Guðrún Björg Elíasdóttir - [email protected] - 515-0000

SJTR Lyfjadeild
Vínlandsleið 16
150 Reykjavík


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum