Hoppa yfir valmynd
19. janúar 2019

Hjúkrunarfræðingur - Göngudeild lyflækninga

Hjúkrunarfræðingur - Göngudeild lyflækninga í Fossvogi - dagvinna

Við leitum eftir áhugasömum og framsæknum hjúkrunarfræðingum til starfa á göngudeild lyflækninga A3. Möguleiki er á hlutastarfi sé þess óskað. Við bjóðum bæði nýútskrifuðum sem og reynslumeiri hjúkrunarfræðingum að koma og kynna sér starfsemi deildarinnar. Upphafsdagur starfs er samkvæmt samkomulagi.

Á göngudeild lyflækninga fer fram fjölbreytt starfsemi þar sem hver eining starfar innan sérgreina lyflækningasviðs, það eru göngudeild innkirtlasjúkdóma, gigtarsjúkdóma, lungnasjúkdóma, smitsjúkdóma og ofnæmislækninga.
Á deildinni starfa þar um 20 hjúkrunarfræðingar í nánu samstarfi við aðra faghópa og taka virkan þátt í uppbyggingu á þjónustu við sjúklinga. Góður starfsandi er ríkjandi sem einkennist af metnaði og fagmennsku.

Góð tækifæri eru til framþróunar og sérhæfingar og leitast verður við að komast til móts við áhugasvið umsækjenda við val á einingu. 
Möguleiki er á stuðningi við framhaldsnám, tengsl við erlendar stofnanir, námsferðir erlendis og rannsóknarvinnu. 
Við tökum vel á móti nýjum starfsmönnum og veitt er einstaklingsmiðaða aðlögun undir leiðsögn reyndra hjúkrunarfræðinga.

Helstu verkefni og ábyrgð
» Sérhæfðar hjúkrunarmeðferðir 
» Fræðsla og ráðgjöf til sjúklingahópa
» Eftirfylgd við sjúklingahópa
» Þróun þjónustu til sjúklingahópa
» Teymisvinna
» Uppbygging þjónustu

Hæfnikröfur
» Faglegur metnaður
» Sjálfstæði í vinnubrögðum
» Góð samskiptahæfni
» Jákvætt lífsviðhorf
» Íslenskt hjúkrunarleyfi

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.

Starfshlutfall er 80 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 04.02.2019

Nánari upplýsingar veitir
Guðrún Magney Halldórsdóttir - [email protected] - 543 6045
Geirný Ómarsdóttir - [email protected] - 824 5100

Landspítali
Göngudeild lyflækninga F
Fossvogi
108 Reykjavík


Smelltu hér til að sækja um starfið

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum