Hoppa yfir valmynd
9. febrúar 2019

Sálfræðingur - Sálfræðiþjónusta á geðsviði

Sálfræðingur - Sálfræðiþjónusta á geðsviði 

Sálfræðiþjónusta Landspítala vill ráða til starfa metnaðarfullan og sjálfstæðan sálfræðing með góða samskiptafærni. Um er að ræða starf í þverfaglegu teymi sem vinnur með ungu fólki með alvarlegar geðraskanir, fyrst og fremst geðrofssjúkdóma. 

Leitað er eftir sálfræðingi sem hefur áhuga á fjölbreyttu starfi í krefjandi þverfaglegu umhverfi. Hjá Sálfræðiþjónustunni starfa 75 sálfræðingar í ólíkum þverfaglegum teymum á ýmsum deildum Landspítala. Sálfræðiþjónustan er í stöðugri framþróun og því unnið að markvíslegum umbótaverkefnum. Margvísleg tækifæri eru til að dýpka þekkingu sína í greiningu og meðferð algengra geðraskana.

Helstu verkefni og ábyrgð
» Greining og meðferð alvarlegra geðraskana
» Þverfagleg teymisvinna
» Önnur störf sem heyra undir starfsemi sálfræðiþjónustu Landspítala

Hæfnikröfur
» Áhugi og góð samskiptahæfni
» Þekking og reynsla af sálfræðilegri greiningu og sálmeinafræði 
» Þekking og reynsla af hugrænni atferlismeðferð
» Hæfni til að vinna sjálfstætt og sýna frumkvæði 
» Reynsla af þátttöku í þverfaglegri teymisvinnu heilbrigðisstétta æskileg
» Íslenskt starfsleyfi sálfræðings

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sálfræðingafélag Íslands hafa gert.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum. 

Starfið er laust nú þegar eða samkvæmt samkomulagi. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 26.02.2019

Nánari upplýsingar veitir
Berglind Guðmundsdóttir - [email protected] - 543 9292

Landspítali
Sálfræðiþjónusta H
Hringbraut
101 Reykjavík


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum