Hoppa yfir valmynd
9. febrúar 2019

Hjúkrunarfræðingur - Vöknun við Hringbraut

Hjúkrunarfræðingur - Vöknun við Hringbraut

Við viljum ráða framsækinn og metnaðarfullan hjúkrunarfræðing til starfa á vöknun við Hringbraut. Starfið er laust skv. nánara samkomulagi. Um er að ræða vaktavinnu en vaktabyrði á helgum og á rauðum dögum er mjög lítil þar sem mestur hluti starfseminnar fer fram á virkum dögum. Möguleiki er á föstum næturvöktum eftir að þjálfun lýkur.

Á vöknun er sjúklingum sinnt eftir skurðaðgerðir, einnig leggjast þar inn sjúklingar eftir ýmsar aðrar meðferðir og rannsóknir sem þarfnast svæfingar eða deyfingar. 
Deildin tilheyrir gjörgæsludeildinni við Hringbraut en þar starfar 90 manna hópur hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða, skrifstofumanna auk sérhæfðra starfsmanna og felur starfið í sér mikla teymisvinnu þar sem unnið er í góðu samstarfi við fjölmarga fagmenn spítalans.
Í boði er góð einstaklingsaðlögun undir leiðsögn reyndra hjúkrunarfræðinga þar sem áhersla er lögð á gott starfsumhverfi.

Deildin er þátttakandi í tilraunaverkefni innan Landspítala um sveigjanlegra vinnufyrirkomulag hjúkrunarfræðinga í vaktavinnu, með undirbúnings- og frágangstíma og viðbragðsvöktum sem hluta af vinnuskyldu. Markmið verkefnisins er að bæta mönnun og starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga á sólarhringsdeildum í bráðaþjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð
» Ákveða, skipuleggja og veita hjúkrunarmeðferð í samráði við skjólstæðinga og bera ábyrgð á meðferð, samkvæmt starfslýsingu

Hæfnikröfur
» Sveigjanleiki, jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar
» Hæfni og geta til að starfa í teymi
» Faglegur metnaður, framsækni og áhugi á gjörgæsluhjúkrun
» Íslenskt hjúkrunarleyfi

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og viðtölum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.

Starfshlutfall er 80 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 04.03.2019

Nánari upplýsingar veitir
Árni Már Haraldsson - [email protected] - 825 9577

Landspítali
Gjörgæsla H
Hringbraut
101 Reykjavík


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum