Hoppa yfir valmynd
16. febrúar 2019

Hjúkrunarnemi/ hlutastarf á bráða- og göngudeild

Hjúkrunarnemi/ hlutastarf á bráða- og göngudeild G3

Áhugasamur og metnaðarfullur hjúkrunarnemi óskast til starfa á bráða- og göngudeild G3 í Fossvogi. Starfið er laust skv. samkomulagi. Starfhlutfall er 20-30%, tekið er tillit til námsins við skipulag vakta.

Á bráða- og göngudeild G3 fer fram móttaka og hjúkrun sjúklinga á öllum aldri vegna og slysa og sjúkdóma. Deildin er opin alla daga ársins frá kl. 8:00-23:30. Unnið er á morgun- og kvöldvöktum og aðra hvora helgi. 

Góður starfsandi er ríkjandi á deildinni og góð námstækifæri. Við tökum vel á móti nýjum starfsmönnum og veitum góða aðlögun. Velkomið að kíkja í heimsókn, áhugasamir hafið samband við Bryndísi Guðjónsdóttur, deildarstjóra.

Helstu verkefni og ábyrgð
» Hlutverk og ábyrgð er í samræmi við starfslýsingar hjúkrunarnema eftir lengd náms
» Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu

Hæfnikröfur
» Sveigjanleiki og lipurð í mannlegum samskiptum
» Hæfni til að vinna sjálfstætt og í teymi
» Góð almenn tölvukunnátta og færni í mæltu og rituðu máli

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og SFR - stéttarfélag í almannaþjónustu hafa gert.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum, ef við á. Öllum umsóknum verður svarað.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum. 

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.

Starfshlutfall er 20 - 30%
Umsóknarfrestur er til og með 04.03.2019

Nánari upplýsingar veitir
Bryndís Guðjónsdóttir - [email protected] - 825 3777
Sólveig Wium - [email protected] - 825 3786

Landspítali
Bráða- og göngudeild
Fossvogi
108 Reykjavík


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum