Hoppa yfir valmynd
21. febrúar 2019

Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Efra Breiðholti

Hjúkrunarfræðingur

Heilsugæslan Efra Breiðholti leitar eftir hjúkrunarfræðingi til starfa við heilsugæsluhjúkrun. Um 100% ótímabundið starf er að ræða. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð
Megin starfssvið eru ung og smábarnavernd og almenn móttaka á heilsugæslustöð. 

Ung og smábarnavernd eflir heilsu, vellíðan og þroska ungra barna með reglulegum heilsufarsskoðunum ásamt stuðningi og heilbrigðisfræðslu til fjölskyldna þeirra.

Starfssvið í móttöku er mjög víðtækt, allt frá símaráðgjöf til bráðaþjónustu. Hjúkrunarmóttakan sinnir fólki á öllum aldri og skiptist í opna móttöku, bókaða móttöku og símaráðgjöf. Í opinni móttöku er tekið á móti bráðaerindum, í bókaðri móttöku er tekið á móti erindum sem eru ekki bráð s.s. ferðamannaheilsuvernd og sárameðferð. Einnig er boðið upp á lífsstíls- og sykursýkisráðgjöf.

Hæfnikröfur
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Reynsla af heilsugæsluhjúkrun æskileg
- Mikil samskiptahæfni og sveigjanleiki
- Faglegur metnaður og áhugi á að vinna með börnum
- Sjálfstæði í starfi 
- Reynsla af og áhugi á teymisvinnu
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá. Jafnframt skal leggja fram leyfisbréf og staðfestar upplýsingar um menntun. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Tekið er mið af jafnréttisstefnu stofnunarinnar við ráðningu í starfið. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 11.03.2019

Nánari upplýsingar veitir
Vildís Bergþórsdóttir - [email protected] - 513 5300 / 8212160
Nanna Sigríður Kristinsdóttir - [email protected] - 513 5300

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Efra Breiðholti hjúkrun
Hraunbergi 6
111 Reykjavík


Smelltu hér til að sækja um starfið

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum