Yfirmaður sjúkraflutninga
Yfirmaður sjúkraflutninga
Heilbrigðisstofnun Suðurlands auglýsir laust til umsóknar starf yfirmanns sjúkraflutninga við stofnunina.
Yfirmaður sjúkraflutninga hefur umsjón með framkvæmd og daglegum rekstri sjúkraflutningaþjónustu í heilbrigðisumdæmi Suðurlands, sem spannar tæpa þrjátíu þúsund ferkílómetra.
Meginstarfstöð yfirmanns sjúkraflutninga í heilbrigðisumdæminu er í Björgunarmiðstöð á Selfossi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ábyrgð á rekstri, mannauði og faglegri þjónustu sjúkraflutninga á starfssvæði HSU
Þátttaka í mótun sjúkraflutninga- og utanspítalaþjónustu á starfssvæði HSU
Tryggja árangursríkt samstarf við starfseiningar stofnunarinnar, með öryggi og vellíðan sjúklinga og starfsmanna að leiðarljósi
Ástunda virka upplýsingargjöf til yfirstjórnar, samstarfsmanna, haghafa og framúrskarandi þjónustu
Þátttaka í umbóta-, þróunar- og gæðaverkefnum innan og utan stofnunar
Tillögur um viðhald og endurnýjun á tækjum og búnaði
Starfsmannaviðtöl
Hæfnikröfur
Menntun á sviði sjúkraflutninga
Háskólamenntun og/eða önnur menntun á sviði stjórnunar og rekstrar, kostur
Þekking á lögum og reglum um sjúkraflutninga og björgunarmál
Reynsla af áætlanagerð, stjórnun, rekstri og úrvinnslu gagna
Reynsla af umbótaverkefnum og teymisvinnu
Hæfni í tjáningu í ræðu og riti
Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Áreiðanleiki, jákvæðni og lausnarmiðað viðhorf
Framúrskarandi samskiptahæfileikar
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Landssamband slökkviliðs- & sjúkraflutningamanna fastir hafa gert.
Starfið er laust frá 1. apríl 2019.
Ráðið er í starfið til 5 ára, sbr. 9.gr. laga nr. 40/2007 og stefnu HSU í ráðningum stjórnenda.
Umsókn skal skilað rafrænt á vef HSU - www.hsu.is undir flipanum "Lausar stöður".
Með umsókn skal fylgja:
Starfsferilsskrá
Kynningarbréf
Afrit af prófskírteinum
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 11.03.2019
Nánari upplýsingar veitir
Herdís Gunnarsdóttir - [email protected] - 432-2000
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Sjúkraflutningar
v/Árveg
800 Selfoss
Smelltu hér til að sækja um starfið