Hoppa yfir valmynd
17. apríl 2019

Hjúkrunarfræðingar - Framtíðarstörf

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðinga til starfa í Reykjanesbæ, þ.e í heimahjúkrun, á legudeild, á slysa- og bráðamóttöku, í skólaheilsugæslu og á hjúkrunarheimilið Víðihlíð Grindavík. Um er að ræða dag- eða vaktavinnu.
Leitað er eftir áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingum sem geta unnið sjálfstætt.
Á stofnuninni er góð samvinna milli deilda, boðleiðir eru stuttar og hér ríkir góður starfsandi.

Viljum benda áhugasömum hjúkrunarfræðingum á nýjan stofnanasamning og tilraunaverkefni sem gildir til 30. september 2019. Hægt er að nálgast samninginn á www.hjukrun.is

Helstu verkefni og ábyrgð

Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf með skemmtilegu og metnaðarfullu starfsfólki. Unnið er á grundvelli þverfaglegs samstarfs sérfræðinga og áhersla lögð á heildarsýn og samþætta þjónustu. Hjúkrunarfræðingar starfa samkvæmt lögum og reglugerðum um heilbrigðisstarfsmenn, siðareglum og markmiðum hjúkrunar og deildarinnar.

Hæfnikröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Faglegur metnaður
  • Góð samskiptahæfni
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvætt og hlýtt viðmót
  • Starfsreynsla er kostur

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Sótt er um starfið rafrænt á www.hss.is undir Laus störf. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum, viðtölum og/eða umsögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSS við ráðningar á stofnunina. Öllum umsóknum verður svarað um leið og ráðið hefur verið í starfið. Umsókn gildir í 6 mánuði.

Á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja eru þrjú svið; heilsugæslusvið, sjúkrahússvið og hjúkrunarsvið. Starfsstöðvar eru í þremur sveitarfélögum; Grindavík, Reykjanesbæ og Vogum. Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sinnir þjónustu í einu fjölmennasta heilbrigðisumdæmi á landinu, um 27.000 manns.

Starfshlutfall er 20 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 13.05.2019

Nánari upplýsingar veitir

Ingibjörg S Steindórsdóttir - [email protected] - 422-0500

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Hg Keflavík Hjúkrunarfræðingar
Skólavegur 6-8
230 Reykjanesbær

Starfssvið: Sérfræðingar á heilbrigðissviði

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum