Hoppa yfir valmynd
24. apríl 2019

Aðjunkt í þroskaþjálfafræði

Aðjunkt í þroskaþjálfafræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands

Laust er til umsóknar fullt starf aðjunkts við Menntavísindasvið Háskóla Íslands í þroskaþjálfafræði. Í starfinu felst kennsla, rannsóknir og þátttaka í mótun náms og kennslu á þroskaþjálfabraut. Um er að ræða tímabundna ráðningu til tveggja ára. 

Helstu verkefni og ábyrgð
>> Kennsla á grunnstigi og leiðsögn með BA-nemum.
>> Þátttaka í rannsóknum á sviði þroskaþjálfafræði.
>> Þátttaka í samstarfi við starfsvettvang þroskaþjálfa.
>> Þátttaka í mótun náms og kennslu á þroskaþjálfabraut.

Hæfnikröfur
Umsækjendur skulu hafa lokið meistaraprófi í þroskaþjálfafræði, eða BA-prófi í þroskaþjálfafræði ásamt meistaraprófi í fræðigrein sem nýtist í starfinu. Nauðsynlegt er að umsækjandi hafi haldgóða reynslu af því að starfa sem þroskaþjálfi. 

Mikil áhersla er á að sá sem starfið hlýtur hafi góða færni í kennslu og rannsóknum. Þá er krafist góðrar samstarfshæfni og lipurðar í mannlegum samskiptum. Við ráðningu verður miðað við að sá er starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum námsbrautar í þroskaþjálfafræði og sviðsins í heild. 

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.

Gert er ráð fyrir að ofangreint starf verði veitt frá júlí 2019 eða samkvæmt nánara samkomulagi.

Umsóknum þarf að fylgja 1) greinargóð skýrsla um kennslureynslu og starfsþróun umsækjanda og sýn á kennslu og kennsluþróun, 2) yfirlit yfir rannsóknir og ritsmíðar (ritaskrá) og fyrirhugaðar rannsóknir, svo og 3) yfirlit um námsferil og störf (curriculum vitae). Ennfremur er ætlast til þess að umsækjendur láti fylgja með umsagnir um kennslu- og stjórnunarstörf sín, eftir því sem við á.

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans, sjá hér: http://www.hi.is/haskolinn/jafnrettisaaetlun#markmid2.

Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands, sjá hér: https://www.hi.is/haskolinn/malstefna_haskola_islands.

Háskóli Íslands er stærsta kennslu-, rannsókna- og vísindastofnun Íslands. Háskólinn veitir nemendum víðtæka menntun á öllum helstu fræðasviðum og þjónar stofnunum, fyrirtækjum og stjórnvöldum í þágu almannaheilla. Háskóli Íslands býður fjölbreytt nám á öllum stigum og er eini háskóli landsins sem býður grunnnám og framhaldsnám á öllum helstu fræðasviðum. 

Á Menntavísindasviði fer fram rannsóknartengt starfsnám fyrir kennara á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi, uppeldis- og menntunarfræðinga, íþrótta- og heilsufræðinga, tómstunda- og félagsmálafræðinga, og þroskaþjálfa. Lögð er áhersla á rannsóknir og þróunarstarf sem unnið er í samstarfi við starfsvettvang.

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 13.05.2019

Nánari upplýsingar veitir
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson - [email protected] - 525 5523


Háskóli Íslands
Menntavísindasvið-Kennarar
Stakkahlíð
105 Reykjavík


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum