Hoppa yfir valmynd
24. apríl 2019

Lögfræðingur

Starf lögfræðings hjá Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar.

Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar (GEF), sem hóf starfsemi sína í maí 2018, auglýsir laust til umsóknar starf lögfræðings í 50% - 100% stöðu, eftir samkomulagi. Hlutastarf kemur til greina. GEF er ráðuneytisstofnun sem sinnir stjórnsýslu- og eftirlitsverkefnum á málasviði laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi þjónustuþarfir og á afmörkuðu sviði barnaverndarlaga. 
Leitað er að einstaklingi sem hefur áhuga á mannréttindum, er tilbúinn að takast á við krefjandi, áhugaverð og fjölbreytt verkefni í nýrri stofnun þar sem reynir á öguð vinnubrögð, ábyrgð og sjálfstæði.

Helstu verkefni og ábyrgð
Starfið felst einkum í meðferð lögfræðilegra viðfangsefna á málasviði stofnunarinnar, svo sem persónuvernd, laga- og reglugerðartúlkun, stjórnsýsluverkefnum og verkefnum tengdum eftirliti. Viðkomandi tekur þátt í mótun innra starfs nýrrar stofnunar.

Hæfnikröfur
Fullnaðarnám í lögfræði, embættis- eða meistarapróf.
Hæfni í mannlegum samskiptum.
Skipulagshæfni.
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Sveigjanleiki og samstarfshæfni.
Gott vald á íslensku í ræðu og riti. 
Góð kunnátta í ensku. 
Þekking á einu Norðurlandamáli æskileg. 
Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu æskileg.
Þekking og reynsla af málefnasviðum stofnunarinnar æskileg. 

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðs hafa gert.
Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst. Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um starfið. 
Með umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá, starfsheiti og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hvernig viðkomandi uppfyllir hæfniskröfur fyrir starfið. Umsóknir skulu fylltar út á Starfatorgi.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. reglur nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum, með síðari breytingum. 

Heimasíða GEF

Starfshlutfall er 50 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 13.05.2019

Nánari upplýsingar veitir
Sigríður Jónsdóttir - [email protected] - 545-8100


Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar
Skógarhlíð 6
105 Reykjavík


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum