Sérfræðingur í heimilislækningum
Sérfræðingur
Sérfræðingur í heimilislækningum óskast til starfa á heilsugæsluna að Selfossi. Æskilegt að viðkomandi sé í fullu starfi þó kemur til greina að skoða lægra starfshlutfall.
Helstu verkefni og ábyrgð
Almennar heilsugæslulækningar og heilsuvernd
Þáttaka í kennslu nema í heilbrigðisgreinum, læknakandídata og sérnámslækna í heimilislækningum
Fræðsla til skjólstæðinga og aðstandenda
Vaktþjónusta á Selfossi
Þátttaka í verkefna- og þróunnarvinnu innan stofnunarinnar
Aðalstarfsstöð er heilsugæslustöðin á Selfossi. Einnig er gert ráð fyrir þátttöku í verkefnum fyrir nálægar heilsugæslustöðvar.
Hæfnikröfur
Íslenskt lækningaleyfi er skilyrði
Sérfræðileyfi í heimilislækningum
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
Hæfni í tjáningu í ræðu og riti
Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Áreiðanleiki, jákvæðni og árangursmiðað viðhorf
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Starf veitist frá 1. september 2019 eða samkvæmt nánara samkomulagi
Umsókn skal skilað rafrænt á vef HSU - www.hsu.is undir flipanum lausar stöður
Umsókninni þurfa að fylgja staðfestar upplýsingar um menntun, starfsleyfi, fyrri störf.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 15.07.2019
Nánari upplýsingar veitir
Arnar Þór Guðmundsson - [email protected] - 432-2000
Sigurður Hjörtur Kristjánsson - [email protected] - 432-2500
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Læknar HgS
Árvegi
800 Selfoss
Smelltu hér til að sækja um starfið