Hoppa yfir valmynd
20. júlí 2019

Hjúkrunarfræðingur á skilunardeild

Við sækjumst eftir metnaðarfullum hjúkrunarfræðingi til starfa á skilunardeild við Hringbraut. Í boði er 3ja mánaða aðlögun, þar af 8 vikna skipulögð fræðsla með reyndum hjúkrunarfræðingi. Deildin heyrir undir lyflækningasvið og sinnir einstaklingum með langvarandi eða tímabundna nýrnabilun (blóð- og kviðskilun). Á deildinni starfa þar um 30 manns í þverfaglegu teymi og góðu starfsumhverfi.

Deildin er opin frá kl. 8-20 virka daga og 8-16 um helgar, unnið er á tvískiptum vöktum, frá kl. 8-16 eða 12-20. Gert er ráð fyrir að viðkomandi sinni bakvöktum eftir að þjálfun lýkur. 
Starfið er laust 1. september 2019 eða eftir nánara samkomulagi. Áhugasömum er velkomið að kíkja í heimsókn, hafið samband við Selmu deildarstjóra.

Helstu verkefni og ábyrgð
» Ákveða, skipuleggja og veita hjúkrunarmeðferð í samráði við skjólstæðinga og bera ábyrgð á meðferð, samkvæmt starfslýsingu
» Skráning hjúkrunar í samræmi við reglur LSH
» Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu

Hæfnikröfur
» Faglegur metnaður
» Góð samskiptahæfni
» Sjálfstæði og nákvæmni í vinnubrögðum
» Íslenskt hjúkrunarleyfi

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum. 

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem hátt í 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.

Starfið auglýst 20. júlí 2019. Umsóknarfrestur er framlengdur til og með 26. ágúst 2019. 

Starfshlutfall er 80 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 26.08.2019

Nánari upplýsingar veitir
Selma Maríusdóttir - [email protected] - 620 1460
Sif Sigurðardóttir - [email protected] - 543 6315

Landspítali
Skilunardeild
Hringbraut
101 Reykjavík

Sækja um starf

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum