Sjúkraliði á útskriftardeild Landakoti
Við sækjumst eftir sjúkraliða sem hefur ánægju af samstarfi við aldraða. Ef þú ert lífsglaður og metnaðarfullur sjúkraliði þá viljum við fá þig í vinnu. Í boði er skemmtilegt starf fyrir þann sem vill taka þátt í hvetjandi starfi þar sem stefnan er að útskrifa skjólstæðinga heim innan mánaðar endurhæfingar. Á deildinni starfa um 30 manns í þverfaglegu teymi. Góður starfsandi er ríkjandi og tækifæri eru til að vaxa í starfi.
Vinnutími og starfshlutfall er samkomulag, unnið er á þrískiptum vöktum. Starfið er laust nú þegar eða eftir nánara samkomulagi.
Við tökum vel á móti nýjum starfsmanni og veitum góða aðlögun. Velkomið að kíkja í heimsókn, áhugasamir hafið samband við Helgu Atladóttur, deildarstjóra.
Helstu verkefni og ábyrgð
» Umönnun einstaklinga í samvinnu við aðra fagaðila
» Virk þátttaka í fjölskylduhjúkrun
» Þátttaka í teymisvinnu
Hæfnikröfur
» Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi
» Jákvætt viðmót og góð samskiptahæfni
» Íslenskukunnátta
» Áhugi á hjúkrun aldraðra
» Íslenskt sjúkraliðaleyfi
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum.
Vinnutími og starfshlutfall er samkomulag. Starfið er laust nú þegar eða eftir nánara samkomulagi.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem hátt í 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.
Starfshlutfall er 50 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 09.08.2019
Nánari upplýsingar veitir
Helga Atladóttir - [email protected] - 824 5103
Katrín Edda Snjólaugsdóttir - [email protected] - 543 9450
Landspítali
Útskriftardeild aldraðra
Túngötu 26
101 Reykjavík
Sækja um starf