Hoppa yfir valmynd
14. september 2019

Ljósmóðir/ tímabundið starf á meðgöngu- og sængurlegudeild

Ljósmóðir/ tímabundið starf á meðgöngu- og sængurlegudeild

Laust er til umsóknar starf ljósmóður á meðgöngu- og sængurlegudeild. Um er að ræða tímabundið starf í 6-12 mánuði. Starfshlutfall er samkomulag, unnið er í vaktavinnu. Starfið er laust frá 16. október 2019 eða eftir nánara samkomulagi.

Deildin sinnir heilbrigðum og veikum konum í sængurlegu eftir fæðingu. Einnig annast deildin konur sem þurfa innlögn og náið eftirlit á meðgöngu og við missi á meðgöngu við 12-22 vikur. Veitt er fagleg umönnun með fjölskylduhjúkrun að leiðarljósi. 

Helstu verkefni og ábyrgð
Ljósmóðir skipuleggur og veitir barnshafandi konum og sængurkonum umönnun í samráði við skjólstæðinga og ber ábyrgð á störfum samkvæmt starfslýsingu.

Hæfnikröfur
» Þekking og reynsla af þjónustu við konur í barneignaferli með fíkni- og eða geðsjúkdóma
» Góð samskiptahæfni og jákvætt viðmót
» Öguð og skipulögð vinnubrögð
» Faglegur metnaður
» Íslenskt ljósmóðurleyfi, hjúkrunarleyfi æskilegt

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Ljósmæðrafélag Íslands hafa gert.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum. Um er að ræða 2 stöðugildi.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og viðtölum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem hátt í 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.

Starfshlutfall er 60 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 30.09.2019

Nánari upplýsingar veitir
Hilda Friðfinnsdóttir - [email protected] - 543 3046/ 825 9594


Landspítali
Meðgöngu- og sængurlegudeild
Hringbraut
101 Reykjavík


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum