Sjúkraliði - bráðaþjónusta kvennadeilda
Sjúkraliði - bráðaþjónusta kvennadeilda
Vegna breytinga á fyrirkomulagi bráðaþjónustu kvennadeilda er laust til umsóknar starf sjúkraliða. Bráðaþjónusta kvennadeilda verður staðsett á göngudeild mæðraverndar og fósturgreiningu á kvenna- og barnasviði Landspítala.
Um er að ræða að mestu kvöld- og helgarvaktir. Starfshlutfall 40-60%. Ráðið verður í stöðuna frá 1. desember 2019 eða eftir samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
» Móttaka, umönnun og eftirlit skjólstæðinga í samvinnu við aðra fagaðila
» Aðstoð við skoðanir
» Umsjón og frágangur sýna
» Ábyrgð og umsjón með aðbúnaði á skoðunarstofum, m.a. frágangur, áfyllingar og birgðaumsjón
» Þátttaka í faglegri þróun umönnunar sem veitt er á deildinni
» Virk þátttaka í teymis- og umbótastarfi
» Klínísk kennsla nema á deild
Hæfnikröfur
» Íslenskt sjúkraliðaleyfi
» Faglegur metnaður, frumkvæði og ábyrgð í starfi
» Sjálfstæði í vinnubrögðum og hæfni til að vinna í teymi
» Góð samskiptahæfni, jákvætt viðmót og sveigjanleiki
» Áhugi á bráðaþjónustu
» Hæfni til að sinna almennum og sérhæfðari verkefnum sjúkraliða
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Öllum umsóknum verður svarað.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem hátt í 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.
Starfshlutfall er 40 - 60%
Umsóknarfrestur er til og með 30.09.2019
Nánari upplýsingar veitir
Ingibjörg Th Hreiðarsdóttir - [email protected] - 824 5828
Stefanía Guðmundsdóttir - [email protected] - 869 9975
Landspítali
Göngudeild mæðraverndar og fósturgreining
Hringbraut
101 Reykjavík
Smelltu hér til að sækja um starfið