Hoppa yfir valmynd
17. október 2019

Heimilislæknir Heilsugæslan Mosfellsumdæmi

Heimilislæknir Heilsugæslan Mosfellsumdæmi

Laust er til umsóknar staða heimilislæknis við Heilsugæsluna Mosfellsumdæmi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi. Starfshlutfall er 100% en lægra starfshlutfall kemur til greina.

Heilsugæslan Mosfellsumdæmi þjónar íbúum í Mosfellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. 

Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).

Helstu verkefni og ábyrgð
- Almennar lækningar
- Heilsuvernd
- Vaktþjónusta
- Þjálfun unglækna
- Þverfagleg teymisvinna
- Þátttaka í þróun starfseminnar og gæðastarfi

Hæfnikröfur
- Íslenskt lækningaleyfi 
- Starfsreynsla í heilsugæslu æskileg
- Faglegur metnaður og sjálfstæði í starfi 
- Frumkvæði og öguð vinnubrögð
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Íslenskukunnátta skilyrði
- Góð almenn tölvukunnátta 

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá ásamt gögnum sem staðfesta menntun, fyrri störf, vísinda- og kennslustörf. Einnig er óskað eftir kynningarbréfi á umsækjanda og ástæðu umsóknar. Þau gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. 

Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í allt að 6 mánuði.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. 

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 04.11.2019

Nánari upplýsingar veitir
Dagný Hængsdóttir - [email protected] - 513-6050
Þórir Björn Kolbeinsson - [email protected] - 513-6050

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Mosfellsumdæmi lækningar
Þverholti 2
270 Mosfellsbær


Smellið hér til að sækja um starfið


 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum