Hoppa yfir valmynd
17. október 2019

Stuðningsfulltrúi

Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ auglýsir eftir stuðningsfulltrúa á sérnámsbraut

Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ óskar eftir að ráða stuðningsfulltrúa á sérnámsbraut. Um er að ræða 50-60% stöðu.

Starfið felst í stuðningi og aðstoð við nemendur á sérnámsbraut. Leitað er að starfsmanni sem hefur góða samskiptahæfileika og hefur áhuga á að vinna með ungu fólki.  Æskilegt er að umsækjendur hafi lokið stúdentsprófi og hafi góða tölvufærni.

Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi ríkisins og viðkomandi stéttarfélags.

Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ kennir sig við auðlindir og umhverfi í víðum skilningi og leggur áherslu á að vera í góðum tengslum við umhverfi sitt, bæði hvað varðar listir og menningu, íþróttir og lýðheilsu og annað það sem einkennir mannlíf í Mosfellsbæ. Skólinn er framhaldsskóli með áfangasniði þar sem í boði eru stúdentsbrautir, framhaldsskólabrautir og sérnámsbraut. Helstu áherslupunktar í kennsluháttum skólans eru fjölbreyttar verkefnamiðaðar kennsluaðferðir og leiðsagnarnám.

Ráðið verður í stöðuna sem fyrst. 

Umsóknir með ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu berast Guðbjörgu Aðalbergsdóttur skólameistara í netfangið [email protected] eða Valgarð Má Jakobsson aðstoðarskólameistara í netfangið [email protected]. Einnig er hægt að senda umsóknir í pósti: Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ, Háholti 35, 270 Mosfellsbær.
Vakin er athygli umsækjenda á að samkvæmt lögum um framhaldsskóla nr. 92/2008 er ekki heimilt að ráða einstakling til starfa sem hlotið hefur dóm fyrir brot á XXII. kafla almennra hegningarlaga og því er beðið um sakavottorð áður en af ráðningu getur orðið.

Umsóknir þurfa að berast í síðasta lagi 4. nóvember 2019. Umsóknir þurfa ekki að vera á sérstökum eyðublöðum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Nánari upplýsingar veitir skólameistari í netfangi g[email protected] eða í síma 864-9729 og aðstoðarskólameistari í netfangi [email protected] eða í síma 696-2660. Á vef skólans www.fmos.is má einnig finna ýmsar upplýsingar um skólann.


Skólameistari

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum