Hoppa yfir valmynd
2. desember 2019

Starfsmaður - Stykkishólmur

Vínbúðirnar óska eftir að ráða starfsmann í Vínbúðina Stykkishólmi.

Við leitum að jákvæðum, glaðlyndum og þjónustuliprum einstaklingi sem er tilbúinn að veita framúrskarandi og ábyrga þjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð
Sala og þjónusta við viðskiptavini
Framstilling á vöru og vörumeðhöndlun
Umhirða búðar

Hæfnikröfur
Jákvæðni og rík þjónustulund
Góð hæfni í mannlegum samskiptum
Almenn tölvukunnátta
Reynsla af verslunarstörfum er kostur
 
Frekari upplýsingar um starfið
Starfshlutfall er 65%.
Umsækjandi skal hafa náð 20 ára aldri.
Sakavottorðs er krafist.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og SFR hafa gert. Áhugasamir sæki um starfið á www.vinbudin.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Nánari upplýsingar veita 
Sigurður Ragnar Bjarnason – [email protected] – 430 1414.
Thelma Kristín Snorradóttir – [email protected] – 560 7700.

Umsóknarfrestur er til og með 13.12.2019.

ÁTVR rekur 51 Vínbúð um allt land. Stefna ÁTVR er að vera eitt af fremstu þjónustufyrirtækjum landsins og fyrirmynd á sviði samfélagsábyrgðar. 

Fyrirtækið vill að vinnustaðurinn sé öruggur, heilsueflandi og skemmtilegur þar sem samskipti einkennast af lipurð, þekkingu og ábyrgð.

Gildi ÁTVR eru LIPURÐ – ÞEKKING – ÁBYRGÐ. Ráðningar í stöður hjá fyrirtækinu taka mið af þessum gildum.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum