Húsasmiður í brúarvinnuflokk - Hvammstangi
HÚSASMIÐUR Í BRÚARVINNUFLOKK VEGAGERÐARINNAR Á HVAMMSTANGA
Brúarvinnuflokkurinn á Hvammstanga óskar eftir húsasmið til að vinna við nýbyggingar og viðhald brúa um allt land, mest þó á norðvestur og norðaustursvæði
Menntunar- og hæfniskröfur
• Sveinspróf í húsamíði
• Almenn ökuréttindi, meirapróf æskilegt
• Framúrskarandi samskiptafærni og rík þjónustulund
• Frumkvæði og árangursdrifni
• Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
• Góð kunnátta í talaðri íslensku eða ensku
Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður sem hentar jafnt báðum kynjum.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi ríkisins og viðkomandi stéttarfélags og umsóknarfrestur er til og með 6. janúar 2020.
Nánari upplýsingar um starfið veita Sigurður Hallur Sigurðsson yfirmaður vinnuflokka Vegagerðarinnar ([email protected]) og í síma 894 8469 eða Vilhjálmur Arnórsson verkstjóri brúarvinnuflokka í síma 894 3355.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og stutt kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur um hæfi til að gegna umræddu starfi. Sækja skal um starfið á [email protected]
Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.