Hópstjóri á meðferðardeild Stuðla
Hópstjóri á meðferðardeild Stuðla
Vilt þú taka þátt í krefjandi og spennandi meðferðarstarfi með unglingum? Barnaverndarstofa auglýsir lausa til umsóknar stöðu hópstjóra á meðferðardeild Stuðla. Um er að ræða 100% stöðu í vaktavinnu.
Starfssvið
• Meðferðarvinna og dagleg samskipti við unglinga á meðferðardeild
• Samskipti við foreldra.
• Vinna að tómstundastarfi með unglingum.
• Einstaklingsbundinn stuðningur við unglingana í meðferð í samvinnu við deildarstjóra, og sálfræðinga.
• Ábyrgð á stjórn meðferðardeildar utan reglubundins vinnutíma.
Hæfnikröfur
• Reynsla og þekking á meðferðarvinnu með unglingum sem og af tómstunda- eða íþróttastarfi æskileg.
• Reynsla af sambærilegu starfi æskileg.
• BA eða BS gráða á heilbrigðis- eða félagssviði er æskileg.
• Staðgóð þekking og/eða reynsla af notkun áhugahvetjandi samtali og ART æskileg.
• Umsækjendur þurfa að geta tileinkað sér þá meðferðarnálgun og verklagsreglur sem unnið er eftir á Stuðlum.
Persónulegir eiginleikar
• Mikilvægt að búa yfir góðri samstarfshæfni, sveigjanleika og jákvæðu viðhorfi til skjólstæðinga.
• Mikilvægt er að búa yfir hæfni til að vinna skipulega.
• Lögð er áhersla á frumkvæði og getu til að vinna sjálfstætt og í teymi.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Við úrvinnslu umsókna um störfin gildir mat Barnaverndarstofu á hæfni og eiginleikum umsækjanda. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum SFR og ríkisins.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Funi Sigurðsson, forstöðumaður Stuðla, í síma 530 8800 eða á netfanginu [email protected].
Umsóknarfrestur er til og með 27. janúar 2020. Með umsóknum skulu fylgja upplýsingar um menntun og fyrri störf. Umsóknir skulu berast til Barnaverndarstofu á netfangið [email protected]. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Auglýsingin gildir í 6 mánuði frá birtingu.
Barnaverndarstofa
Fossaleynir 17 (Grafarvogi), 112 Reykjavík
www.studlar.is