Hoppa yfir valmynd
25. febrúar 2020

Deildarlæknir bráðamóttaka

Deildarlæknir bráðamóttaka

Laus er til umsóknar 100% staða deildarlæknis á bráðamóttöku Sjúkrahússins á Akureyri. Staðan veitist frá 1. apríl 2020 eða eftir samkomulagi.
Næsti yfirmaður er Laufey Hrólfsdóttir forstöðumaður deildar mennta og vísinda. 
Faglegur yfirmaður Pálmi Óskarsson forstöðulæknir.

Helstu verkefni og ábyrgð
Almenn störf deildarlæknis - dagvinna og vaktir.
Þátttaka í kennslu og þjálfun læknanema.

Hæfnikröfur
Umsækjandi skal hafa fullgilt íslenskt lækningaleyfi.

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferil ásamt prófskírteinum. 
Umsóknum skal skilað rafrænt á vef sjúkrahússins www.sak.is 
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Við ráðningar er tekið mið af jafnréttisstefnu sjúkrahússins, sem er reyklaus vinnustaður. 
Gildi Sjúkrahússins á Akureyri eru: Öryggi -  Samvinna - Framsækni. 
Sjúkrahúsið hefur hlotið alþjóðlega gæðavottun á starfsemi sinni.

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 13.03.2020

Nánari upplýsingar veitir
Laufey Hrólfsdóttir - [email protected] - 4630100
Jón Pálmi Óskarsson - [email protected] - 4630100


Sjúkrahúsið á Akureyri
Unglæknar.
Eyrarlandsvegur
600 Akureyri


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum