Spænskukennari
Spænskukennari
Hjá Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi er laust til umsóknar 50% starf spænskukennara. Um er að ræða kennslu á skólaárinu 2020-2021. Möguleiki er á áframhaldandi ráðningu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Kennarinn ber ábyrgð á kennslu, undirbúningi og námsmati í greininni.
Hæfnikröfur
- Umsækjandi uppfyllir kröfur um menntun og hæfni samkvæmt lögum nr. 95/2019.
- Góð spænskukunnátta
- Kennslureynsla er æskileg
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.
Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi, afrit af prófskírteinum og leyfisbréfi kennara. Tilgreina skal meðmælendur. Öllum umsóknum verður svarað.
Tekið er mið af jafnréttisáætlun FVA við ráðningar í störf við skólann.
FVA er framsækinn og traustur framhaldsskóli sem starfar samkvæmt gildunum jafnrétti, virðing og fjölbreytileiki. Áhersla er lögð á lýðræðislega kennslu- og stjórnunarhætti og notalegan skólabrag í samræmi við gildi skólans.
Starfshlutfall er 50%
Umsóknarfrestur er til og með 08.06.2020
Nánari upplýsingar veitir
Steinunn Inga Óttarsdóttir - [email protected] - 433 2500
Fjölbrautaskóli Vesturlands, Akranesi (02354)
Vogabraut 5
300 Akranes
Smellið hér til að sækja um starf