Hoppa yfir valmynd
6. ágúst 2020

Iðjuþjálfi við Sjúkrahúsið á Akureyri

Iðjuþjálfi við Sjúkrahúsið á Akureyri

Laus er til umsóknar 75% staða iðjuþjálfa við sjúkrahúsið á Akureyri, staðsett á Kristnesi.
Staðan er laus frá 1.október 2020 eða eftir samkomulagi.
Við Sjúkrahúsið á Akureyri fer iðjuþjálfun fram á tveimur starfsstöðvum: í aðalbyggingu en þar er iðjuþjálfun tengd bráðadeildum og við Kristnesspítala við endurhæfingar- og öldrunarlækningadeild.
Helstu verkefni iðjuþjálfa á Kristnesi eru mat og þjálfun í athöfnum daglegs lífs, fjölskyldufundir, mat á þörf fyrir hjálpartæki og útvegun þeirra, heimilisathuganir fyrir útskrift og eftirfylgd. Iðjuþjálfi heldur fræðslu fyrir starfsfólk sjúkrahússins og sinnir beiðnum m.a. um mat og ráðgjöf á vinnuaðstöðu.
Næsti yfirmaður er Arna Rún Óskarsdóttir forstöðulæknir.

Helstu verkefni og ábyrgð

Staðan er fjölbreytt og gefur tækifæri til að takast á við margbreytileg og spennandi verkefni ásamt því að hafa áhrif á áframhaldandi uppbyggingu iðjuþjálfunar. Iðjuþjálfar eru ekki ráðnir á ákveðna starfsstöð og sinna, ef þörf þykir, verkefnum á Kristnesi og á bráðadeildum sjúkrahússins. Í gildi er starfssamningur milli SAk og Háskólans á Akureyri um kennslu, rannsóknir og endurmenntun. Verkleg kennsla nema í iðjuþjálfun fer fram á Sjúkrahúsinu á Akureyri.

Hæfnikröfur

Umsækjendur þurfa að hafa BSc. próf í iðjuþjálfun og löggildingu til þess að starfa sem slíkur. Umsækjendur þurfa að búa yfir góðri hæfni til mannlegra samskipta og hafa hæfileika til að starfa sjálfstætt.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Iðjuþjálfafélag Íslands hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt á vef sjúkrahússins www.sak.is
Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferil ásamt prófskírteinum og starfsleyfi.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Við ráðningar í störf er tekið mið af jafnréttisstefnu sjúkrahússins, sem er reyklaus
Gildi Sjúkrahússins á Akureyri eru: ÖRYGGI SAMVINNA FRAMSÆKNI.
Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi.
Áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.

Starfshlutfall er 75%
Umsóknarfrestur er til og með 18.08.2020

Nánari upplýsingar veitir

Linda Aðalsteinsdóttir - [email protected] - 4630100
Arna Rún Óskarsdóttir - [email protected] - 4630100

 

Sjúkrahúsið á Akureyri
E og Ö iðjuþjálfun
v/Eyrarlandsveg
600 Akureyri

 

Smellið hér til að sækja um starf

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum