Hoppa yfir valmynd
6. ágúst 2020

Lífeindafræðingur á rannsóknastofu HSS

Lífeindafræðingur á rannsóknastofu HSS

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar eftir að ráða lífeindafræðing til starfa á rannsóknastofu sína í Reykjanesbæ. Um er að ræða fast starf í 80% starfshlutfalli í dagvinnu, ásamt bakvöktum. Æskilegt er viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Leitað er eftir áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingum sem geta unnið sjálfstætt. Á stofnuninni er góð samvinna milli deilda, boðleiðir eru stuttar og hér ríkir góður starfsandi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf með skemmtilegu og metnaðarfullu starfsfólki.
Á rannsóknastofu eru framkvæmdar rannsóknir í blóðmeinafræði, klínískri lífefnafræði og sýklafræði. Unnið er á grundvelli þverfaglegs samstarfs sérfræðinga og áhersla lögð á heildarsýn og samþætta þjónustu.
Lífeindafræðingar starfa samkvæmt lögum og reglugerðum um heilbrigðisstarfsmenn.

Hæfnikröfur

Próf í lífeindafræði ásamt starfsleyfi.
Faglegur metnaður.
Góð samskiptahæfni.
Sjálfstæði í vinnubrögðum.
Hlýtt og jákvætt viðmót.
Starfsreynsla er kostur.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag lífeindafræðinga hafa gert.
Sótt er um starfið rafrænt á www.hss.is undir Laus störf. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og/eða umsögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSS við ráðningar á stofnunina. Öllum umsóknum verður svarað um leið og ráðið hefur verið í starfið. Umsókn gildir í 6 mánuði.

Á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja eru þrjú svið; heilsugæslusvið, sjúkrahússvið og hjúkrunarsvið. Starfsstöðvar eru í þremur sveitarfélögum; Grindavík, Reykjanesbæ og Vogum. Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sinnir þjónustu í einu fjölmennasta heilbrigðisumdæmi á landinu, um 27.000 manns.


Starfshlutfall er 80%
Umsóknarfrestur er til og með 27.08.2020

Nánari upplýsingar veitir

Karen Rúnarsdóttir - [email protected] - 422-0500/691-2881

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Rannsókn aðrir
Skólavegur 6-8
230 Reykjanesbær

Smellið hér til að sækja um

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum