Rekstrarstjóri fasteigna við Landbúnaðarháskóla Íslands
Rekstrarstjóri fasteigna við Landbúnaðarháskóla Íslands
Landbúnaðarháskóli Íslands óskar eftir að ráða rekstrarstjóra fasteigna skólans. Rekstur fasteigna heyrir undir rekstrarsvið skólans. Starfsstöðvar Landbúnaðarháskóla Íslands eru á Hvanneyri, Reykjum í Ölfusi og á Keldnaholti í Reykjavík. Fasteignir skólans eru í kringum þrjátíu talsins og eru flestar leigðar af Ríkiseignum. Starfið felst í umsjón með almennu viðhaldi og rekstri húsnæðis háskólans, þar með talið Nemendagörðum sem staðsettir eru á Hvanneyri.
Helstu verkefni og ábyrgð
-Rekstur og umsjón með almennu viðhaldi fasteigna
-Samskipti við Ríkiseignir
-Útboðs og samningagerð
-Áætlanagerð
-Kostnaðarstýring
-Samningar við verktaka
-Öryggismál
Hæfnikröfur
-Viðeigandi iðnmenntun, meistararéttindi æskileg
-Háskólapróf í verkfræði, tæknifræði eða skyldum greinum æskilegt
-Reynsla af skipulagningu og stjórnun byggingarekstrar og viðhaldsverkefna
-Framúrskarandi samskiptahæfni
-Sjálfstæði
-Frumkvæði
-Þjónustulund
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 04.09.2020
Nánari upplýsingar veitir
Guðmunda Smáradóttir - [email protected] - 6977292
Kristín Theodóra Ragnarsdóttir - [email protected] - 4335000
Landbúnaðarháskóli Íslands
Rekstrarsvið
Andakílshreppur
311 Borgarnes