Hoppa yfir valmynd
22. desember 2020 Matvælaráðuneytið

Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á blómum

Með vísan til 65. gr. búvörulaga nr. 99/1993, með síðari breytingum og til reglugerðar um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum, trjám o.fl., er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir eftirfarandi innflutningsmagn blóma sem sótt skal um í stykkjatölu fyrir tímabilið 1. janúar - 30. júní 2021.

Vara

Tímabil

Vörumagn

Verðtollur

Magntollur

Tollskrárnr.:

stk.

%

kr./stk.

Blómstrandi plöntur með knúppum eða blómum, þó ekki kaktusar:

0602.9081-.9083 og 0602.9088

Blómstrandi plöntur með knúppum eða blómum, þó ekki kaktusar

01.01.-30.06.21

2.200

30

0

Aðrar:

0602.9093

Pottaplöntur til og með 1 metri á hæð, þó ekki kaktusar og þykkblöðungar og plöntur af ættkvíslinni Bromilea og plönturnar Erica Gracilis og Calluna

01.01.-30.06.21

3.000

30

0

Lifandi:

0603.1100

Rósir

01.01.-30.06.21

2.000

30

0

0603.1400

Tryggðablóm (Chrysanthemums)

01.01.-30.06.21

9.000

30

0

0603.1906-1908, 0603.1911-1918 og 0603.1999

Afskorin blóm og blómknappar sem notað er í vendi eða til skrauts, lifandi, þurrkað, litað, bleikt, gegndreypt eða unnið á annan hátt, þ.m.t. geislafíflar, sólliljur, fétoppar, silkivendir, ilmskúfar, ljónsmunnar, gullhrís, silfurstjörnur, brúðarslör, flamingoblóm og túlípanar.

01.01.-30.06.21

166.250

30

0

Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur, hverju sinni, skal leita tilboða í tollkvóta vegna viðkomandi vöruliðar. Úthlutun er ekki framseljanleg.

Skriflegar umsóknir skulu berast til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis, Skúlagötu 4, 150 Reykjavík, 5. hæð, eða á [email protected] fyrir kl. 16:00 miðvikudaginn 6. janúar 2021.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum